Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 146
Dýrð sé Guði! Já, ég vil vegsama hann! Ég vil lofa hann á meðan ég lifi, vegsama hann fram á síðustu stund.
Reiddu þig ekki á hjálp valdsmanna, því að þeir falla og ekkert verður úr aðstoð þeirra. Þeir munu deyja og andi þeirra líður burt, áform þeirra verða að engu. En sæll er sá maður sem reiðir sig á hjálp Guðs, Guðs Jakobs, sem vonar á Drottin, Guð sinn – þann Guð sem skapaði himin og jörð og hafið og allt sem í því er. Hann er sá Guð sem óhætt er að treysta! Hann leitar réttar fátækra og kúgaðra og gefur hungruðum brauð. Hann frelsar fanga, opnar augu blindra, lyftir okinu af þeim sem eru að bugast. Drottinn elskar þá sem gera rétt. Hann verndar útlendingana sem sest hafa að í landinu og gætir réttinda ekkna og einstæðinga, en ónýtir ráðabrugg vondra manna.
Drottinn mun ríkja að eilífu. Jerúsalem, veistu að Drottinn er konungur að eilífu?! Hallelúja!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.