Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 143

Drottinn, heyrðu bæn mína. Svaraðu ákalli mínu, því að þú ert réttlátur og stendur við orð þín. Leiddu mig ekki fyrir dóm, því að enginn er réttlátur frammi fyrir þér.

Óvinir mínir eltu mig og náðu mér. Þeir slógu mig til jarðar og drógu mig inn í myrkrið – ég er eins og þeir sem gengnir eru til grafar. Ég eygi enga von, er lamaður af ótta. Ég hugsa um máttarverk þau sem þú vannst fyrir langa löngu. Ég leita þín. Mig þyrstir eftir þér eins og örþrota land, skrælnað af þurrki. Komdu skjótt, Drottinn og bjargaðu mér, því að ég er að örmagnast! Snúðu ekki við mér bakinu, því að þá væri úti um mig. Sýndu mér miskunn þína að morgni, því að þér treysti ég. Sýndu mér þann veg er ég á að ganga, því að bæn mín er beðin í einlægni. Frelsaðu mig undan óvinum mínum, Drottinn minn, ég vil flýja í skjól þitt. Hjálpaðu mér að gera vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um réttan veg.

Drottinn, láttu mig lífi halda og leystu mig úr öllum þessum nauðum, því að þú ert réttlátur og veist að ég hef ekkert til saka unnið. Ég er þjónn þinn. Þú elskar mig og ert mér svo góður! Ryð þú burt þessum óvinum mínum og láttu þá hverfa sem ofsækja mig.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.