Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 130
Ó, Drottinn, ég er í nauðum staddur, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á mig! Svaraðu og hjálpaðu mér!
Drottinn, ef þú rifjaðir sífellt upp syndir okkar, hver fengi þá staðist? En þú fyrirgefur! Getum við annað en óttast þig og elskað? Og þess vegna bið ég og vona og treysti hjálp Guðs, því að hann hefur lofað að hjálpa. Næturverðirnir þrá nýjan dag, en ég þrái Drottin enn meira!
Ísrael, treystu Drottni því að hann er góður og miskunnsamur og veitir gnægð lausnar. Hann mun sjálfur leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.