Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 127
Ef hús er ekki byggt að ráði Drottins, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar ekki borgina, vaka verðirnir til einskis. Hvers vegna þrælar þú myrkranna á milli af ótta við skort? Veistu ekki að Guð vill að vinir hans fái þá hvíld sem þeir þarfnast? Á meðan þeir sofa, blessar hann þá með gjöfum.
Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni. Börn sem maður eignast ungur, eru eins og beittar örvar – þau koma síðar að gagni! Sæll er sá maður sem hefur fyllt örvamæli sinn með þeim! Hann mun ekki verða til skammar þegar hann þarf að útkljá deilumál við óvini sína!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.