Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 110

Guð sagði við minn Drottin – við Krist: „Þú skalt ráða og ríkja mér við hlið. Ég mun sigra óvini þína og láta þá þjóna þér.“

Guð hefur reist þér hásæti í Jerúsalem og þaðan muntu drottna yfir óvinum þínum. Þegar konungsvald þitt verður lýðum ljóst, mun þjóð þín flýta sér á þinn fund og æskufólk þitt íklæðast helgum skrúða. Eins og döggin er ný á hverjum morgni, eins mun styrkur minn endurnýjast dag eftir dag. Guð hefur unnið mér eið – og hann iðrast þess ekki – að þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks. Guð er þér til hægri handar til að vernda þig. Þegar reiðidómur hans verður birtur mun hann fella marga konunga til jarðar. Hann mun refsa þjóðunum, lík þeirra munu liggja út um allt. Hann mun mölva höfuð þeirra. Á leiðinni drekkur hann úr lindinni við veginn og ber höfuðið hátt.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.