Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 101
Ég vil syngja um réttlætið og miskunnsemina. Ég vil lofsyngja þér, ó Guð!
Ég, konungurinn, vil kappkosta að lifa heiðarlega og ganga um heimili mitt í grandvarleik – hjálpaðu mér til þess!
Gefðu mér að forðast allt sem er gróft og ljótt – að fyrirlíta hið illa. Já, ég vil ekki vera sjálfselskur og vondur. Ég umber ekki þá sem baktala nágranna sinn, og hroka og dramb mun ég ekki þola. Ég leita uppi réttláta menn í landinu og kalla þá til starfa, að þeir búi hjá mér, – þeir einir sem grandvarir eru. Svikara og lygara þoli ég ekki í mínum húsum. Ég þagga niður í illmennunum í landinu og útrými úr borginni öllum óguðlegum.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.