Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Matteus 1

Ættartala Jesú Krists

Þessir eru forfeður Jesú Krists, afkomanda Davíðs konungs og Abrahams: Abraham var faðir Ísaks. Ísak var faðir Jakobs. Jakob var faðir Júda og bræðra hans. Júda var faðir Peresar og Sera (móðir þeirra hét Tamar). Peres var faðir Esroms. Esrom var faðir Rams, en Ram var faðir Ammínadabs og sonur hans var Nakson. Nakson var faðir Salmons. Salmon var faðir Bóasar (kona hans var Rut). Óbeð var faðir Ísaís, en Ísaí faðir Davíðs konungs og Davíð faðir Salómons (móðir hans var ekkja Úría). Salómon var faðir Róbóams og sonur hans var Abía. Abía var faðir Asafs. Asaf var faðir Jósafats. Jósafat var faðir Jórams og Jóram faðir Ússía. Ússía var faðir Jótams, en sonur hans var Akas og Esekía var sonur hans. Esekía var faðir Manasse, en hann var faðir Amoss og Amos faðir Jósía. Jósía var faðir Jekonja og bræðra hans (þeir fæddust í herleiðingunni til Babýlon).

Eftir herleiðinguna: Jekonja var faðir Sealtíels, Sealtíel var faðir Serúbabels, Serúbabel faðir Abíúds og Abíúd faðir Eljakíms. Eljakím var faðir Asórs, en sonur hans var Sadók. Og Sadók var faðir Akíms, Akím faðir Elíúds og Elíúd faðir Eleasars. Eleasar var faðir Mattans, Mattan faðir Jakobs og Jakob faðir Jósefs en hann var eiginmaður Maríu, móður Jesú Krists.

Þetta eru fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs konungs, fjórtán ættliðir frá Davíð fram að herleiðingunni og einnig fjórtán ættliðir frá herleiðingunni fram til Krists.

Fæðing barnsins sögð fyrir

Aðdragandinn að fæðingu Jesú var á þessa leið: María móðir hans var trúlofuð Jósef. Hún varð þunguð af völdum heilags anda meðan hún var enn ósnortin mey. Jósef, unnusti hennar, sem var mjög sómakær maður, ákvað þá að slíta trúlofuninni í kyrrþey, því að hann vildi ekki valda henni opinberri smán.

Eitt sinn er hann var að íhuga þetta á andvökunóttu, sofnaði hann og dreymdi að engill stóð hjá honum og sagði:

„Jósef, sonur Davíðs, hikaðu ekki við að kvænast Maríu, því að barnið sem hún gengur með, er getið af heilögum anda. Hún mun eignast son, og þú skalt láta hann heita Jesú (sem þýðir Guð frelsar), því að hann mun frelsa þjóð sína frá syndum hennar. Þannig mun rætast það sem spámaður Guðs sagði: „Takið eftir! Meyjan mun þunguð verða! Hún mun fæða son og hann verða kallaður „Immanúel“ (en það þýðir Guð er með okkur)“.“

Þegar Jósef vaknaði, ákvað hann að gera eins og engillinn hafði sagt honum og ganga að eiga Maríu, þau höfðu þó ekki kynmök fyrr en eftir að sonurinn var fæddur. Og Jósef gaf drengnum nafnið Jesús.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.