Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
II. Þessaloníkubréf 1
Frá Páli, Sílasi og Tímóteusi.
Til safnaðarins í Þessaloníku, sem er varðveittur í Guði föður og í Drottni Jesú Kristi. Guð, faðir Drottins Jesú Krists, blessi ykkur ríkulega og fylli hugi ykkar og hjörtu friði sínum.
Þjáningin hefur sinn tilgang
Kæru vinir, það er okkur bæði rétt og skylt að þakka Guði fyrir ykkur, því að trú ykkar hefur vaxið undursamlega og kærleikur ykkar eflst innbyrðis. Það er okkur ljúft að segja öðrum söfnuðum frá þolinmæði ykkar og trausti til Guðs, þrátt fyrir ógnir og erfiðleika sem þið hafið orðið að þola. Þetta er enn ein staðfesting þess að Guð er sanngjarn og réttlátur í öllu. Hann notar þjáningarnar til að efla ykkur í trúnni, og samtímis vinnur hann að dómi og refsingu þeirra sem ofsækja ykkur.
Því segi ég við ykkur sem illt þolið: Guð mun frelsa ykkur, og okkur, úr þessum þrengingum. Það verður þegar Drottinn Jesús kemur frá himnum ásamt sínum voldugu englum. Hann kemur í logandi eldi og mun kveða upp dóm yfir þeim sem ekki þekkja Guð og þeim sem óhlýðnast fagnaðarerindi hans. Þeir munu glatast og þeim refsað með eilífum aðskilnaði frá Drottni. Þeir munu ekki sjá dýrð hans og mátt, er hann birtist til að hljóta lof og tilbeiðslu allra þeirra sem á hann trúa, en þeirra á meðal verðið þið, því þið trúðuð vitnisburði okkar um hann.
Þess vegna biðjum við stöðugt fyrir ykkur, að Guð varðveiti ykkur og fullkomni allt það góða sem þið vinnið að í trú og krafti hans. Þá mun nafn Drottins verða vegsamlegt í lífi ykkar og þið sjálf verða honum til dýrðar. Þessu mun kærleikur og miskunn Guðs koma til leiðar.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.