Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

I. Þessaloníkubréf 3

Góðar fréttir frá Tímóteusi

Þegar ég gat ekki afborið þetta lengur, ákvað ég að verða eftir í Aþenu. Ég sendi Tímóteus, bróður okkar og þjón Guðs, til ykkar, til að styrkja ykkur og uppörva í trúnni og koma í veg fyrir að þið misstuð kjarkinn vegna allra erfiðleikanna sem þið mættuð. Auðvitað vitið þið að slíkir erfiðleikar eru þáttur í áætlun Guðs með okkur kristna menn. Meðan við vorum hjá ykkur, þá sögðum við ykkur að þið mynduð brátt mæta ofsóknum og það stóð heima.

En sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til að komast að því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um að Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg. En nú er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, að trú ykkar sé sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig að þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við að við gætum hist á ný.

Kæru vinir, þessar fréttir, að þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum að þola hér. Við getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum að þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.

Hvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin? Við biðjum Guð þess dag og nótt að við fáum að heimsækja ykkur á ný, svo að við getum aukið enn meir við trú ykkar. Ég bið þess að sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á ný. Auk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar. Þannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo að þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.