Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

I. Korintubréf 13

Þótt ég hefði hæfileika til að tala tungum og talaði öll tungumál, bæði jarðnesk og himnesk, en elskaði ekki aðra, þá væri það ómerkilegt glamur – tilgangslaus orðaflaumur. Ef ég hefði spádómsgáfu og vissi allt um framtíðina, vissi bókstaflega allt um allt, en hefði ekki kærleika, hvaða gagn væri þá í því? Og jafnvel þó að ég hefði svo mikla trú að ég gæti skipað fjöllum að færast úr stað, þá væri ég einskis virði án kærleika. Ef ég elskaði ekki meðbræður mína, þá væri ég engu bættari. Þótt ég gæfi fátækum aleiguna eða yrði brenndur á báli fyrir trúna á Jesú, en hefði ekki kærleika, væri ég ekkert betri.

Kærleikurinn er þolinmóður og góðviljaður. Hann er hvorki öfundsjúkur, montinn né hrokafullur. Hann er aldrei yfirlætislegur, eigingjarn eða ókurteis. Hann krefst ekki réttar síns, reiðist ekki og er ekki langrækinn né smámunasamur. Hann gleðst aldrei yfir ranglæti, heldur fagnar þegar sannleikurinn nær fram að ganga. Sá sem hlýðir rödd kærleikans, breiðir yfir mistök annarra, treystir orðum þeirra, umber þá og væntir góðs frá þeim.

Kærleikurinn mun aldrei falla úr gildi, en hæfileikinn til að spá og tala tungum, og þekkingargáfa, allt mun þetta líða undir lok. Þekking okkar nær skammt, og spádómar okkar líka, en þegar við verðum orðin fullkomin í eilífðinni, þá þurfum við ekki lengur á þessum sérstöku hæfileikum að halda, og þá munu þeir hverfa.

Þegar ég var barn, þá talaði ég, hugsaði og ályktaði eins og barn, en þegar ég varð fullorðinn þá óx ég frá því öllu og lagði niður barnaskapinn. Á sama hátt skiljum við Guð aðeins á takmarkaðan hátt, enn sem komið er, rétt eins og við sæjum spegilmynd hans í lélegum spegli. En sú stund mun koma að við fáum að sjá hann augliti til auglitis, eins og hann er. Nú er þekking mín og skilningur í molum, en þá mun ég sjá allt skýrt og greinilega, á sama hátt og Guð sér mig nú og allar mínar hugsanir og þrár.

Það sem nú skiptir máli er þetta þrennt: Trúin, vonin og kærleikurinn, og þeirra er kærleikurinn mestur.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.