Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms
Sálmarnir 137
Við sátum á bökkum Babylonsfljóts og minntumst Jerúsalem – og grétum. Gígjurnar höfum við lagt til hliðar, hengt þær á greinar pílviðarins. Hvernig eigum við að geta sungið? Samt heimta kúgarar okkar söng, vilja að við syngjum gleðiljóð frá Síon! Ef ég gleymi þér Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd! Ef ég elska annað umfram Jerúsalem, þá sé mér mátulegt að missa málið og tapa röddinni.
Ó, Drottinn, gleymdu ekki orðum Edómíta, daginn þegar Babyloníumenn hernámu Jerúsalem. „Rífið allt til grunna!“ æptu þeir. Þú Babýlon, ófreskja eyðingarinnar, þú munt sjálf verða lögð í rúst. Lengi lifi þeir sem eyða þig – þig sem eyddir okkur. Og heill þeim sem tekur ungbörn þín og slær þeim við stein!
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.