Skip to content
BibleKenya

Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms

Sálmarnir 129

Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar) og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig!

Þótt þeir húðstrýktu mig og tættu bak mitt, þá segi ég samt: „Drottinn er góður!“ Því að hann braut hlekkina sem illmennin höfðu fjötrað mig með.

Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja. Þeir skulu vera eins og gras á þaki – það skrælnar áður en það hefur vaxið og myndað fræ. Sláttumaðurinn mun grípa í tómt og sá sem bindur fær ekki neitt. Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!“

Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.