Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms
Sálmarnir 124
Hefði það ekki verið Drottinn sem með okkur var þetta skulu allir í Ísrael játa – hefði það ekki verið Drottinn, þá hefðu óvinirnir gleypt okkur lifandi, útrýmt okkur í heiftarreiði sinni. Við hefðum skolast burt á augabragði, horfið í strauminn.
Lofaður sé Drottinn, hann bjargaði okkur úr klóm þeirra. Við sluppum eins og fugl úr snöru veiðimanns. Snaran gaf sig og við flugum burt!
Hjálp okkar kemur frá Drottni sem skapaði himin og jörð.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.