Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms
Sálmarnir 120
Ég ákalla Guð í neyð minni og hann hjálpar mér.
Drottinn, frelsaðu mig frá svikum og prettum. Þú lygatunga, hver verða örlög þín? Oddhvassar örvar munu stinga þig og glóandi kol brenna þig!
Hvílík mæða að búa með óguðlegum! Ég er þreyttur á þeim sem hata friðinn. Ég þrái frið, en þeir elska stríð og láta ráð mín sem vind um eyrun þjóta.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.