316-biblían
Markús 3
Jesús kom þá í samkomuhúsið. Þar var maður með visnaða hönd,1 2 og þeir fylgdust vandlega með honum til að sjá hvort hann myndi lækna á hvíldardeginum, svo það væri hægt að kæra hann fyrir það.3 „Stígðu hingað fram,“ sagði Jesús við manninn með visnuðu höndina.4 „Hvort er löglegra,“ sagði Jesús við þá, „að gera eitthvað gott á hvíldardeginum eða eitthvað illt? Að bjarga mannslífi, eða drepa mann?“ Þeir svöruðu því engu.5 6 Hann horfði á þá með vanþóknunarsvip, dapur yfir harðneskjunni sem þeir sýndu af sér. „Réttu út höndina,“ sagði hann við manninn. Maðurinn rétti út höndina, og hún varð jafn heilbrigð og hin höndin.7 Eftir þetta byrjuðu farísearnir að ræða það við Heródesarsinnana hvernig þeir gætu þaggað niður í Jesú.8 9
Þegar Jesús fór síðan með lærisveinum sínum að vatninu elti mikill mannfjöldi hann – fólk frá Galíleu, Júdeu,10 Jerúsalem, Ídúmeu, löndunum handan árinnar Jórdan, Týrus og Sídon – vegna þess að það hafði heyrt um allt það ótrúlega sem hann hafði gert.11 Jesús varð að segja lærisveinunum að vera tilbúnir með lítinn bát, ef mannfjöldinn skyldi þrengja sér að honum -12 hann hafði nefnilega læknað svo marga að veikt fólk reyndi oft að komast að honum til að snerta hann.13 Í hvert skipti sem óhreinir andar sáu hann féllu þeir fram fyrir hann og hrópuðu: „Þetta er sonur Guðs!“14 15 Hann skipaði þeim að ljóstra því ekki upp16 fyrir neinum hver hann væri.17
Jesús gekk upp á fjall og kallaði þar formlega til sín þá sem hann hafði valið til að ganga með sér.18 Hann valdi tólf lærisveina til að fylgja sér - þessa tólf sendi hann út til þess að flytja boðskap sinn19 og gerði þeim kleift20 að lækna fólk af veikindum og reka út djöfla.21 Þessir tólf lærisveinar voru Símon (sem Jesús gaf nafnið Pétur),22 Jakob og Jóhannes Sebedeussynir (sem hann kallaði „boargenes“, sem þýðir „þrumusynirnir“),23 Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon kananíti og Júdas Ískaríot, sem átti eftir að svíkja hann.24
Eftir að þeir voru komnir heim flykktist svo mikill fjöldi fólks að Jesú að þeir höfðu ekki einu sinni næði til þess að borða.25 Ættingjar hans sem fréttu af þessu reyndu að tala um fyrir26 honum.27 28 Jerúsalemsku lögmálskennararnir sögðu að hann væri andsetinn, og að þegar hann henti djöflum út úr fólki hlyti hann að vera að nota mátt djöflanna sjálfra.29 30 Jesús kallaði þá til sín og útskýrði þetta fyrir þeim með dæmisögu. „Hvernig ætti Satan að geta kastað sjálfum sér út?“ spurði hann þá.31 „Lið sem rís upp á móti sjálfu sér fellur fljótlega og hús sem rís upp á móti sjálfu sér hrynur fljótlega. Ef Satan risi upp á móti sjálfum sér yrði hann fljótlega búinn að vera.32 Það er ekki hægt að brjótast inn hjá sterkum manni og ræna hann án þess að binda fyrst þennan sterka eiganda hússins.33 34 Muniði þetta: Fólk getur fengið fyrirgefningu fyrir allar syndir sínar og guðlast35 36 en guðlast gegn Heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Sá sem gerir það verður dæmdur í samræmi við það.“37 38 Þetta sagði hann vegna þess að þeir sögðu að hann væri haldinn óhreinum anda.
Bræður Jesú og móðir hans komu og báðu um að Jesús yrði sóttur til að koma út og tala við þau.39 Þegar Jesú var sagt að móðir hans og bræður væru fyrir utan og vildu tala við hann svaraði hann: „Hver er móðir mín og hverjir eru bræður mínir?“ Hann leit á fólkið sem umkringdi hann. „Jú,“ sagði hann, „þetta hérna eru móðir mín og bræður mínir,40 vegna þess að það er sá sem gerir vilja Guðs sem er bróðir minn, systir mín eða móðir mín.“41 42
Source notes (42)
- Cross-reference Matt 12:9-14; Lúk 6:6-11
- Footnote Samkomuhús, Mrk 1:21.
- Cross-reference Lúk 6:7; Lúk 14:1
- Cross-reference Matt 12:13; Lúk 6:8
- Cross-reference Matt 12:10; Lúk 6:9
- Footnote Jesús setur upp einfalda siðferðisspurningu: Hvíldardagurinn snýst um líf og gæði, ekki reglur sem koma í veg fyrir að hjálpa öðrum. Þögn þeirra sýnir að þeir voru ekki tilbúnir að viðurkenna réttlæti Jesú. Hvíldardagurinn, Mrk 1:21.
- Cross-reference Matt 12:13; Lúk 6:10
- Cross-reference Matt 12:14; Lúk 6:11; Jóh 11:53
- Footnote Heródesarsinnar voru stuðningsmenn Heródesar Antipas (svæðisstjóri Galíleu) og pólitískir samstarfsmenn farísea, sem annars voru oft ósammála. Þetta er fyrsta merkið um samantekin ráð þeirra sem vildu drepa Jesú. Farísear, Mrk 2:16.
- Cross-reference Matt 4:25; Matt 12:15; Lúk 6:17
- Cross-reference Matt 4:25; Mrk 5:20
- Cross-reference Mrk 4:1
- Cross-reference Mrk 5:28; Mrk 6:56
- Cross-reference Matt 8:29; Mrk 1:24; Lúk 4:41
- Footnote Sonur Guðs, Mrk 1:1. Jafnvel óhreinu andarnir þekkja hver Jesús er, en Jesús bannar þeim að segja það upphátt (v. 12). Sjá Messíasarleyndarmáli, Mrk 2:10.
- Footnote Að ljóstra upp er að segja frá, t.d. að segja frá leyndarmáli eða því sem hefur verið hulið.
- Cross-reference Mrk 1:25; Mrk 1:34
- Cross-reference Matt 10:1-4; Lúk 6:12-16
- Cross-reference Mrk 6:7; Lúk 9:1
- Footnote Að gera kleift er sama og að gera mögulegt. Dæmi: Dagleg hæfing gerði mér kleift að hlaupa maraþon.
- Cross-reference Matt 10:1; Lúk 9:1
- Cross-reference Matt 10:2-4; Lúk 6:13-16; Post 1:13
- Footnote „Þrumusynirnir“ - Jóhannes og Jakob voru líklega ákafir og sterkir persónuleikar.
- Footnote Ættkvíslir Ísraels eru tólf. Jesús stofnar nýtt „Ísrael“ með tólf lærisveinum.
- Cross-reference Mrk 6:31
- Footnote Að tala um fyrir er að leiðrétta eða fá til að skipta um skoðun.
- Cross-reference Jóh 7:5; Jóh 10:20
- Footnote „Ættingjar hans“ (líklega móðir og bræður) skildu ekki hvað Jesús var að kenna og gera. Þeir héldu að hann væri „galinn“, m.a. vegna þess mikla mannfjölda sem kom til Jesú.
- Cross-reference Matt 9:34; Matt 12:24; Lúk 11:15
- Footnote „Beelsebúb“ var upphaflega nafn á filistískum guði („herra flugnanna“), en Gyðingar notuðu það sem nafn á höfðingja djöflanna (Satan). Þeir ásaka Jesú um að nota djöfullegan kraft. Lögmálskennarar, Mrk 1:22.
- Cross-reference Matt 12:25-29; Lúk 11:17-22
- Cross-reference Matt 12:26; Lúk 11:18
- Cross-reference Matt 12:29; Lúk 11:21-22
- Footnote Jesús snýr ásökuninni við: ef hann rekur djöfla út, þá er hann sterkari en Satan („sterki maðurinn“). Það sýnir að konungsríki Guðs er að sigra illskuna.
- Cross-reference Matt 12:31-32; Lúk 12:10
- Footnote Guðlast, Mrk 2:7.
- Cross-reference Heb 6:4-6; 1Jóh 5:16
- Footnote „Synd gegn Heilögum anda“. Þetta þýðir að hafna algjörlega vinnu Heilags anda (t.d. neita að viðurkenna að Jesús vinnur með krafti Guðs). Það er ekki ein eða fleiri syndir heldur ástand hjartans sem neitar fyrirgefningu.
- Cross-reference Matt 12:46-50; Lúk 8:19-21
- Cross-reference Matt 12:49; Lúk 8:21
- Cross-reference Matt 12:50; Lúk 8:21; Róm 8:29; Heb 2:11
- Footnote Jesús endurskilgreinir „fjölskyldu“: Hún er ekki bara blóðbönd heldur að gera vilja Guðs. Þetta eru mikilvæg skilaboð um nýtt samfélag því kirkjan er „fjölskylda Guðs.“
316-biblían. Copyright © 2026 Every Nation Iceland. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.