Skip to content
BibleKenya

316-biblían

Markús 13

Þegar Jesús kom út úr musterinu sagði einn af lærisveinunum við hann: „Sjáðu steinana og byggingarnar hér!“1 2 „Sjáið þessar stóru byggingar,“ sagði Jesús. „Þær verða lagðar í rúst svo það verður ekki einn einasti steinn ofan á öðrum steini.“3 4 Svolitlu seinna, þegar Jesús sat á Ólífufjallinu á móti musterinu, komu Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés til hans.5 „Hvenær á þetta eiginlega eftir að gerast?“ spurðu þeir hann. „Hvaða merki sjáum við um að það sé komið að því?“6 „Ekki láta neinn blekkja7 ykkur,“ svaraði Jesús.8 „Margir eiga eftir að koma í mínu nafni og segjast vera ég – þeir munu blekkja marga.9 En ekki hafa áhyggjur þegar þið sjáið átök og heyrið fréttir af átökum. Það þarf allt að gerast, en það þýðir ekki að endirinn sé kominn.10 Þjóðirnar munu berjast, og jarðskjálftar munu eiga sér stað víða, og hungursneyðir og alls konar vandamál. Þetta gefur til kynna að erfiðu tímarnir séu að byrja.11 En þið – þið verðið dregnir fyrir æðstaráðið, barðir í samkomuhúsunum og leiddir fyrir landstjóra og konunga vegna þessa að þið sögðuð frá mér.12 13 Fyrst og fremst þarf allur heimurinn að fá að heyra fagnaðarerindið.14 15 En þegar þið eruð teknir og dregnir fyrir dómstóla skuluð þið ekki hafa neinar áhyggjur af því sem þið eigið að segja. Orðin koma til ykkar þegar þið þurfið á þeim að halda – þá verðið það ekki þið sem talið heldur Heilagur andi.16 Menn munu svíkja bræður sína til dauða og feður munu svíkja börnin sín. Börn munu svíkja foreldra sína og láta dæma þá til dauða.17 Fólk á eftir að hata ykkur vegna mín, en ef þið látið það ekki buga ykkur bjargist þið að lokum.18 19

En þegar óhugnaðurinn sem spámaðurinn Daníel talaði um stendur þar sem hann á ekki að vera (lesandinn skilur hvað ég er að meina) þarf fólkið í Júdeu að flýja strax upp til fjallanna.20 21 Ef einhver er uppi á þaki hefur hann ekki tíma til að fara aftur inn í húsið til að sækja dótið sitt22 og ef einhver er úti á túni hefur hann ekki tíma til að snúa við og sækja jakkann sinn.23 Þetta verður skelfilegt tímabil fyrir ófrískar konur og konur með börn á brjósti!24 Þið verðið að vona að þið þurfið ekki að flýja um vetur.25 Þetta verða hræðilegri tímar en hafa nokkurn tímann sést frá sköpun heimsins, og það verða aldrei hræðilegri tímar en þessir.26 Ef Drottinn hefði ekki ákveðið að stytta þessa tíma myndi enginn bjargast. En vegna fólksins sem hann útvaldi27 hefur hann.28 Ef einhver segir ykkur að Kristur sé hér eða þar skuluð þið ekki trúa honum.29 30 Það koma nefnilega falskir Kristar og spámenn. Þeir gera kraftaverk til að reyna að blekkja fólk, jafnvel fólkið sem Guð hefur útvalið.31 En hafið augun opin, því nú er ég búinn að vara ykkur við þessu.32

Eftir þessa erfiðu tíma hætta sólin og tunglið að skína.33 Stjörnurnar falla af himninum og kraftar himnanna verða skekin.3435 Síðan sjá allir Mannssoninn og mátt hans og kraft þegar hann kemur úr skýjunum.36 37 Svo sendir hann englana sína til að safna saman fólkinu sem hann hefur útvalið hvaðan sem það er í heiminum.38

Ég skal segja ykkur dæmisögu um fíkjutré: Þegar greinar þess eru mjúkar og ný lauf vaxa á þeim veit maður að það styttist í sumarið.39 Þannig verður það þegar þið sjáið allt þetta gerast – þá vitið þið að það styttist í þetta, að það mun bráðum gerast.40 Kynslóðin sem er á lífi núna verður ekki dáin áður en þetta hefur allt saman gerst.41 42 Jafnvel þó himinninn og jörðin hrynji til grunna munu þessi orð mín samt ekki falla úr gildi.43 En enginn veit nákvæmlega hvaða dag og klukkan hvað þetta gerist – hvorki englarnir né Sonurinn – nema Faðirinn sjálfur.44 45 Fylgist þess vegna vel með og biðjið, því þið vitið ekki hvenær þetta gerist.46 Þetta er eins og þegar maður fer af stað í langt ferðalag og segir þjónunum sínum að sjá um húsið á meðan, verkamönnunum að vinna vinnuna sína og dyravörðunum að standa vörð.47 Eins þurfið þið að standa vörð, því þið vitið ekki hvenær húseigandinn kemur heim. Það gæti gerst um kvöld, um miðja nótt eða snemma um morguninn.48 Þið megið ekki láta hann finna ykkur sofandi á verðinum.49 Þess vegna segi ég ykkur öllum að standa vörð.“50

Source notes (50)
  1. Cross-reference Matt 24:1; Lúk 21:5
  2. Footnote Musterinu, Mrk 11:11.
  3. Cross-reference Matt 24:2; Lúk 19:44; Lúk 21:6
  4. Footnote Jesús spáir eyðileggingu musterisins sem rættist árið 70 e.Kr. þegar Rómverjar undir forystu Títusar lögðu Jerúsalem í rúst. Títus varð seinna keisari, árin 79-81. Þetta var mikilvægur spádómur fyrir Gyðinga. Musterið var miðpunktur trúar þeirra, menningu og þjóðernis.
  5. Cross-reference Matt 24:3; Lúk 21:7
  6. Cross-reference Matt 24:3
  7. Footnote Að blekkja merkir að plata. T.d. að segjast vera einhver annar en maður er.
  8. Cross-reference Matt 24:4
  9. Cross-reference Matt 24:5; Lúk 21:8
  10. Cross-reference Matt 24:6; Lúk 21:9
  11. Cross-reference Matt 24:7-8; Lúk 21:10-11
  12. Cross-reference Matt 10:17-18; Lúk 21:12
  13. Footnote Æðstaráðið var æðsta þing og dómstóll Gyðinga í Ísrael á tímum Jesú. Það starfaði líkt og hæstiréttur og stjórnvald í trúarlegum og lagalegum málum. Það samanstóð af um 70 leiðtogum, þar á meðal æðsta prestinum, æðstu prestum, öldungum og lögmálskennurum. Þeir hittust í Jerúsalem og höfðu vald yfir lögum Gyðinga, deilumálum og mikilvægum ákvörðunum. Undir rómverskri stjórn gátu þeir ekki dæmt neinn til dauða (þess vegna fóru þeir með Jesú til Pílatusar). Í Markúsarguðspjalli er æðstaráðið valdamikill hópur sem lagði á ráðin gegn Jesú, yfirheyrði hann og kaus að sakfella hann við réttarhöldin (Mrk 14:53–65; 15:1). Æðstaráðið var eins og „Hæstiréttur Gyðinga + þing“ samanlagt – æðstu trúarlegu og pólitísku leiðtogarnir sem stjórnuðu málefnum landsins í sameiningu. Samkomuhúsunum, Mrk 1:21.
  14. Cross-reference Matt 24:14
  15. Footnote Fagnaðarerindið, Mrk 1:1.
  16. Cross-reference Matt 10:19-20; Lúk 12:11-12
  17. Cross-reference Matt 10:21; Lúk 21:16
  18. Cross-reference Matt 10:22; Matt 24:13
  19. Footnote Að láta ekki bugast merkir að gefast ekki upp heldur sýna þrautseigju og halda áfram. Jesús kennir um þrautseigju í ofsóknum. Þetta er mikilvægt fyrir alla kristna sem mæta ofsóknum. Hinir fyrstu kristnu upplifðu flestir ofsóknir.
  20. Cross-reference Matt 24:15-16; Lúk 21:20-21; Dan 9:27; Dan 11:31; Dan 12:11
  21. Footnote „óhugnaðurinn“ (úr Daníelsbók), Jesús vísar til rómverskra herja sem vanhelga musterið (eða hugsanlegs viðburðar í framtíðinni). Vanhelgun fyrir Gyðinga væri t.d. að slátra svíni eða hella niður svínablóði (sjá Mrk 5:13) inni í musterinu (sjá Mrk 11:11). Hann segir fólki að flýja þegar það gerist. Fólkið í Jerúsalem gekk í gegnum hræðilegar þjáningar á meðan rómverski herinn sat um borgina, m.a. mannát þegar verst var.
  22. Cross-reference Matt 24:17
  23. Cross-reference Matt 24:18
  24. Cross-reference Matt 24:19; Lúk 21:23
  25. Cross-reference Matt 24:20
  26. Cross-reference Matt 24:21
  27. Footnote Í Nýja testamentinu er „hinir útvöldu“ algengt heiti yfir hina trúuðu, sjá Róm 8:33, Kól 3:12, 1Pét 1:2, 2Tím 2:10.
  28. Cross-reference Matt 24:22
  29. Cross-reference Matt 24:23
  30. Footnote Kristur, Mrk 1:1.
  31. Cross-reference Matt 24:24
  32. Cross-reference Matt 24:25
  33. Cross-reference Matt 24:29; Lúk 21:25; Jes 13:10; Jes 34:4; Esek 32:7; Jóel 2:10
  34. Cross-reference Matt 24:29
  35. Footnote Að vera skekin merkir hristur, svipað og jarðskjálfti.
  36. Cross-reference Matt 24:30; Dan 7:13
  37. Footnote „kemur úr skýjunum“, Jesús vísar í Daníel 7:13-14, þar sem hann kemur í dýrð og með valdi. Mannssonurinn, Mrk 2:10.
  38. Cross-reference Matt 24:31
  39. Cross-reference Matt 24:32; Lúk 21:29-30
  40. Cross-reference Matt 24:33
  41. Cross-reference Matt 24:34; Lúk 21:32
  42. Footnote Margir spádómar Biblíunnar, sérstaklega í ræðunni á Ólífufjallinu (Mrk 13), eru marglaga og vísa til fleiri en eins atburðar í framtíðinni. Í fyrsta lagi uppfylling til styttri (skamms) tíma: Á líftíma áheyrenda Jesú („þessi kynslóð“), sem vísar til eyðingar Jerúsalem og musterisins árið 70 e.Kr., ásamt tilheyrandi styrjöldum, hungursneyð og ofsóknum. Í öðru lagi endanleg eða endatímauppfylling: Hápunktur í fjarlægri framtíð, sem felur í sér endurkomu Krists og lokadóm. Spádómar Biblíunnar nota oft fyrirmyndarfræði: Fyrri atburðir eru að hluta til „fyrirmyndir“ að stærri veruleika í framtíðinni. Guð setur oft marglaga merkingu í einn spádóm svo hægt sé að tala á áhrifaríkan hátt til upprunalegra áheyrenda en vísa á sama tíma til endanlegrar uppfyllingar. Í stuttu máli getur ein spádómsyfirlýsing eins og Mrk 13:30 á réttmætan hátt vísað bæði til nálægs sögulegs atburðar og fjarlægs hápunkts – án mótsagnar. Þetta er vel þekkt einkenni spádóma Biblíunnar.
  43. Cross-reference Matt 24:35; Lúk 21:33
  44. Cross-reference Matt 24:36
  45. Footnote Jesús segir að hann (sem sonurinn) viti ekki daginn.
  46. Cross-reference Matt 24:42; Lúk 21:36
  47. Cross-reference Matt 25:14-15
  48. Cross-reference Matt 24:42-44; Lúk 12:35-40
  49. Cross-reference Matt 24:50
  50. Cross-reference Matt 24:44; Lúk 12:37

316-biblían. Copyright © 2026 Every Nation Iceland. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.