Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Hebreabréfið 13

Hvatningarorð og kveðjur

Haldið áfram að elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. Gleymið ekki gestrisninni því að sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum. Gleymið ekki föngunum, heldur takið þátt í þjáningum þeirra eins og þið sjálf væruð í þeirra sporum. Samhryggist þeim sem illt þola, því að sjálf hafið þið líkama. Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór.

Varist alla ágirnd og látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sagt: „Ég mun aldrei, aldrei bregðast þér né yfirgefa þig.“ Við getum því sagt, óttalaust og án efasemda: „Drottinn hjálpar mér og því óttast ég hvorki mennina né verk þeirra.“

Minnist leiðtoga ykkar, sem hafa frætt ykkur um orð Guðs. Hugsið um allt hið góða, sem þeir komu til leiðar, og reynið að treysta Drottni á sama hátt og þeir.

Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu. Látið því engar nýjar og framandi kenningar hafa áhrif á ykkur. Styrkur ykkar kemur frá Guði, en ekki vissum reglum um mataræði – sú leið hefur reynst gagnslaus þeim er hana fóru. Við höfum okkar altari – kross Krists – en það kemur þeim ekki að gagni, sem reyna að frelsast með hlýðni við lög Gyðinga. Samkvæmt lögum Gyðinga, bar æðsti presturinn blóðið úr fórnardýrunum inn í helgidóminn – hið allra helgasta – sem syndafórn, og síðan voru hræin af þeim brennd fyrir utan borgina. Þetta skýrir hvers vegna Jesús þjáðist og dó fyrir utan borgina. Þar afmáði hann syndir okkar með blóði sínu.

Göngum því út til hans, út fyrir borgina (það er að segja snúum baki við því sem heimurinn hefur mætur á og verum reiðubúin að þola fyrirlitningu) til að þjást þar með honum og bera smán hans. Við erum aðeins gestir á þessari jörð, sem horfa fram á veginn til himins, því að þar munum við eiga heima að eilífu. Með hjálp Jesú munum við enn bera lofgjörðarfórn fram fyrir Guð, með því að játa nafn hans meðal fólksins. Gleymið ekki að gera öðrum gott og deila eigum ykkar með þeim sem þurfandi eru, slíkar fórnir eru Guði mjög að skapi.

Hlýðið ykkar andlegu leiðtogum með glöðu geði. Hlutverk þeirra er að vaka yfir sálum ykkar og Guð mun dæma þá eftir gerðum þeirra. Stuðlið að því að þeir geti minnst ykkar með gleði frammi fyrir Drottni, en ekki með hryggð, því að það yrði ykkur til ógagns. Biðjið fyrir okkur að við höfum góða samvisku og breytum vel í öllum hlutum. Ég þarfnast fyrirbæna ykkar á sérstakan hátt, einmitt nú, til þess að ég geti komist til ykkar sem fyrst.

Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo að þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, að hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo að þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum sé dýrðin að eilífu. Amen.

Vinir, ég bið ykkur að lokum að fara eftir því sem ég hef sagt í þessu bréfi. Það er ekki langt og ætti því að vera fljótlesið. Ég vil gjarnan að þið vitið að bróðir Tímóteus er laus úr fangelsinu. Ef hann kemur hingað bráðlega, munum við verða samferða til ykkar. Skilið kveðjum frá mér til leiðtoga ykkar og annarra trúaðra. Mennirnir frá Ítalíu, sem hér eru ásamt mér, senda ykkur kærar kveðjur. Náð Guðs sé með ykkur öllum. Amen.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.